Kylfingur.is: Birgir úr leik
Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG er úr leik á lokastigi úrtökumótsins fyrir evrópsku mótaröðina sem fram fer á San Roque vellinum á Spáni. Hann lék besta hringinn í mótinu í dag, 73 höggum, en það dugði ekki til. Hann lék hringina fjóra á samtals 12 höggum yfir pari og er í 107. – 114. sæti af 153 keppendum þegar þetta er skrifað. Hann var þremur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn sem verður eftir hringinn í dag.
Meira…