Kvennakarfan: Keflavík er úr leik
Keflavík eru úr leik í undanúrslitum úrvalsdeilar kvenna í körfuknattleik eftir tap gegn KR í kvöld. Þetta var þriðji leikur liðanna í viðureigninni og sigraði KR í öllum leikjunum. Úrslit leiksins í kvöld urðu 71-62.
Nokkuð jafnt var á með liðunum í fyrri hálfleik en Keflavíkurstúlkur unnu fyrsta fjórðung 14-11 og annan fjórðung 14-13. Staðan í hálfleik var því 28-24 fyrir Keflavík.
KR stúlkur komu vel stemmdar í síðari hálfleikinn, unnu þriðja leikhlutann 20 -14 og þann fjórða 27-20.
TaKesha Watson skoraði 17 stig fyrir Keflavík og Birna Valgarðsdóttir var með 15 stig.
Þetta er í fyrsta sinn síðan leiktíðina 2001-2002 sem Keflavík tekur ekki þátt í úrslitum úrvalsdeildar, samkvæmt því er karfan.is greinir frá.