HSS
HSS

Íþróttir

Fimmtudagur 28. nóvember 2002 kl. 11:34

Krystal byrjar vel hjá Njarðvík

Njarðvíkurstúlkur sigruðu Hauka, 94-83, í 1. deild kvenna í körfuknattleik í gær en staðan í hálfleik var 40:37. Leikurinn var jafn og hin mesta skemmtun enda mikið skorað. Krystal Scott nýji erlendi leikmaðurinn í liði Njarðvíkinga átti mjög góðan leik en hún var að spila sinn fyrsta leik fyrir liðið. Krystal gerði sér lítið fyrir og skoraði 30 stig, tók 8 fráköst, gaf 9 stoðsendingar og stal 4 boltum. Með sigurinn eru Njarðvíkurstúlkur með sex stig í deildinni.
Bílakjarninn
Bílakjarninn