Kristmundur Gíslason skrifar undir afrekssamning
Kristmundur hefur verið einn allra sterkasti taekwondo keppandi landsins síðustu ár og stefnir hraðbyr á Ólympíuleikana 2020
Kristmundur Gíslason, landsliðsmaður í taekwondo skrifaði undir afrekssamning við taekwondo deild Keflavíkur í síðustu viku. Kristmundur hefur verið einn allra sterkasti taekwondo keppandi landsins síðustu ár og stefnir hraðbyr á Ólympíuleikana 2020. Þetta er svo vitað sé fyrsti samningur sinnar tegundar sem íslenskur taekwondo keppandi hefur gert við félag og það er mikill heiður fyrir taekwondo deildina að eiga svo metnaðarfullan keppanda. Kristmundur hefur einnig þjálfað hjá félaginu um áraraðir og náð góðum árangri á Íslandi og erlendis.