Kristján: Dönsk knattspyrna var að veði
Hetjulegri baráttu Keflvíkinga gegn einu sterkasta knattspyrnuliðið Danmerkur er nú lokið. Liðin skildu jöfn 4-4 í tveimur leikjum í undankeppni UEFA keppninnar í knattspyrnu en Midtjylland komst áfram á tveimur mörkum sem þeir gerðu í fyrsta leik liðanna í Keflavík. Kristján Guðmundsson þjálfari Keflavíkur sagði í samtali við Víkurfréttir að Keflavíkurliðið hefði sýnt af sér frábæra frammistöðu og að á heildina litið væri einvígið gegn Midtjylland sigur fyrir Keflavík.
„Við áttum að komast áfram. Við áttum góða möguleika á því og hefðum átt að vera 2-0 yfir í hálfleik en nýttum illa gott færi sem við fengum skömmu fyrir hálfleik. Við vorum meira í vörn en Midtjylland en lékum engu að síður heilsteyptari leik en þeir. Það voru nokkur atriði í þessum leik sem gerðu út um leikinn því snemma fékk Nicolai þungt höfuðhögg og skömmu síðar geriðst svipað atvik og þar varð Hallgrímur Jónasson fyrir barðinu,” sagði Kristján en Hallgrímur mun sennilega fara á sjúkrahús í kvöld og láta athuga höfuðmeiðsli sín en Nicolai sleppur við ferðina á sjúkrahúsið. Nicolai fór út af í upphafi síðari hálfleiks en hafði staðið eins og klettur í vörninni en fann til eymsla í höfði.
„Midtjylland komst upp með gróf atriði í leiknum og högnuðust á því,” sagði Kristján. Keflvíkingar voru betra liðið að sögn Kristjáns og bætti því við að baulað hefði verið á heimamenn er þeir gengu af leikvelli þegar dómarinn flautaði til leikhlés. „Það er sárgrátlegt að við skyldum ekki komast áfram en það var mikið að veði í þessum leik. Dönsk knattspyrna var að veði því þeir þurfa fleiri stig hjá UEFA til að vera raðað hærra í Evrópukeppninni,” sagði Kristján en vildi einnig koma áleiðis hversu mikið afrek þetta einvígi hefði verið hjá Keflavík.
„Midtjylland hefur aðeins tapað einum Evrópuleik á heimavelli og þá hafa þeir fengið sterk lið til sín eins og Sporting Lissabon. Þeir ætluðu sér að rúlla yfir okkur en við vorum bara frábærir í leiknum. Minnstu munaði að Danirnir gæfust upp því þegar við komumst í 1-0 tóku þeir út af varnarmenn og settu inn sóknarmenn. Hvað sem öllu líður þá verðum við að sætta okkur við lokaniðurstöðuna en ef við byggjum á frammistöðu okkar í þessum leik í dag þá eru okkur allir vegir færir,” sagði Kristján.
Auðheyrt var á þjálfaranum að menn væru svekktir að hafa ekki komist áfram í næstu umferð en þegar fram líða stundir þá verður þetta einvígi Keflavíkur og Midtjylland skráð sem eitt af mestu knattspyrnuafrekum hjá íslensku félagsliði. Frammistaða Keflvíkinga í einvíginu var lofsverð og sterkt veganesti inn í lokasprettinn í Landsbankadeildinni.
VF-Mynd/ [email protected] - Kristján og Kristinn, þjálfarar Keflavíkur, mega una sáttir við frammistöðu Keflvíkinga gegn Midtjylland þó Keflvíkingar hafi ekki komist áfram að þessu sinni.