Kristinn og Ingunn í úrvalsliði NM
Ísland átti fjóra leikmenn í úrvalsliðum á Norðurlandamótinu í körfubolta þetta árið. Þar á meðal voru tveir Suðurnesjamenn. Í flokki U16 ára karla var Kristinn Pálsson frá Njarðvík valinn í úrvalslið og hjá U18 ára liði kvenna var Keflvíkingurinn Ingunn Embla Kristínardóttir fullrúi Íslands.
Íslendingum gekk vel á mótinu sem haldið var í Solna í Svíþjóð en tvenn silfurverðlaun komu í hús að þessu sinni.
Nánar má fræðast um mótið á Karfan.is.