HSS
HSS

Íþróttir

Kristinn látinn fara
Miðvikudagur 15. desember 2004 kl. 22:05

Kristinn látinn fara

Kristinn Friðriksson hefur verið látinn víkja sæti sem þjálfari körfuknattleiksliðs Grindavíkur. Ástæðan mun vera brösótt gengi liðsins í Intersportdeildinni í vetur. Einar Einarsson hefur verið ráðinn í hans stað og gert er ráð fyrir því að Einar muni stýra liði Grindavíkur gegn KR annað kvöld.

Kristinn Friðriksson staðfesti þessar fregnir við Víkurfréttir en leiðir hans og Grindavíkurliðsins skilja í góðu að sögn Friðriks. Einar Einarsson, arftaki Friðriks, er mörgum körfuknattleiksunnendum að góðu kunnur en hann hefur m.a. leikið með Keflavík og Tindastól ásamt því að hafa þjálfað um árabil.

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn