Kristinn Guðbrandsson: Miklu betri allan leikinn
Aðstoðarþjálafari Keflavíkurliðsins, Kristinn Guðbrandsson, brosti sínu breiðasta þegar Víkurfréttir náðu af honum tali í leikslok. Kristinn lék með Keflvíkingum 1997 þegar þeir urðu bikarmeistarar og skoraði úr úrslitavítinu en í dag var hann á hliðarlínunni og miðlaði af bikarreynslu sinni.
„Það kom mér svolítið á óvart hvað yfirburði okkar voru miklir í dag, við vorum að fá mjög góð færi og hefðum þannig lagað getað gert betur þar en við vorum bara miklu betri en KR allan leikinn,“ sagði Kristinn og bætti við að hann hefði fundið þetta á sér á síðustu æfingunum fyrir bikarúrslitaleikinn.
„Á undanförnum æfingum fyrir þennan leik var virkilega góður mórall í hópnum og því lagðist leikurinn í dag mjög vel í mig. Vörnin stóð sig mjög vel sem og allt liðið og þetta er bara frábær dagur,“ sagði Kristinn rétt áður en hann brunaði inn í búningsklefa til þess að fagna með Keflvíkingum.
VF-mynd/ [email protected] - Kristinn er neðstur til vinstri á myndinni en með honum eru Ómar Jóhannsson, markvörður, Baldur markaskorari Sigurðsson, Falur Daðason, sjúkarþjálfari, og með bikarinn góða er Jónas Guðni Sævarsson.