Reykjanesbær ljósanótt
Reykjanesbær ljósanótt

Íþróttir

Kristinn, Snjólfur og Ingvi með í landsliðshóp fyrir EM
Miðvikudagur 14. júní 2017 kl. 11:29

Kristinn, Snjólfur og Ingvi með í landsliðshóp fyrir EM

Búið er að velja lokahóp U20 landsliðs karla fyrir sumarið en framundan er eitt stærsta verkefni yngri landsliða KKÍ frá upphafi, þegar liðið fer á lokamót EM í fyrsta sinn í íslenskri körfuboltasögu.

 

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept

KKÍ greinir frá því að strákarnir hafi æft stíft að undanförnu en þrír úr hópnum koma af Suðurnesjunum. Það eru Njarðvíkingarnir Kristinn Pálsson, sem spilar þessa dagana með Marist í Bandaríkjunum, og Snjólfur Stefánsson. Þá er Grindvíkingurinn Ingvi Þór Guðmundsson einnig með í hópnum.

 

Næsta verkefni þeirra verður U20-mót sem fram fer hér á landi 19.- 21. júní í Laugardalshöllinni. Að lokum fara þeir á EM til Krítar, en gríska sambandið bauð liðinu að taka þátt í æfingamóti fyrir EM, ásamt Spánverjum, Ítölum og Grikkjum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn