HSS
HSS

Íþróttir

KR vinna sinn fyrsta sigur gegn Njarðvík
Miðvikudagur 19. janúar 2005 kl. 22:05

KR vinna sinn fyrsta sigur gegn Njarðvík

Njarðvík varð í kvöld fyrsta liðið til að tapa stigum gegn KR í 1. deild kvenna. KR vann nauman heimasigur á Suðurnesjastúlkunum, 55-54, og var það fyrsti sigur þeirra í vetur.

Heimastúlkur náðu forskoti strax og leiddu 19-13 eftir fyrsta leikhluta. Njarðvíkingar sóttu á fram að hálfleik og voru bnúnar að minnka muninn niður í 2 stig í hálfleik, 31-29.

Seinni hálfleikur var kaflaskiptur en KR virtust alltaf skrefi á undan þó Njarðvíkingar næðu stöku sinnum forystunni. Þrátt fyrir góðan endaspret þar sem þær sóttu á náðu gestirnir ekki að skáka Vesturbæingum og tap var staðreynd.

"Við mættum bara ekki tilbúin í þennan leik," sagði Agnar Mar Gunnarsson þjálfari Njarðvíkur. "KR-ingar ætluðu sér sigur og náðu strax forskotinu." Agnar óttast þó ekki að erfitt verði að ná 4. sætinu sem gefur rétt á sæti í úrslitakeppninni. "Nei, nei. Það er nóg eftir og Haukarnir eru bara tveimur stigum á undan okkur."

Tölfræði leiksins

Bílakjarninn
Bílakjarninn