SSS uppbyggingarsjóður
SSS uppbyggingarsjóður

Íþróttir

KR-Keflavík: Bein textalýsing frá oddaleiknum: lokatölur 105-89 KR í vil
Fimmtudagur 7. apríl 2011 kl. 19:06

KR-Keflavík: Bein textalýsing frá oddaleiknum: lokatölur 105-89 KR í vil



Nú er ljóst að Keflvíkingar eru úr leik eftir tap í kvöld. Lokatölur urðu 105-89 og Keflvíkingar sáu í raun aldrei til sólar eftir fyrsta leikhluta. Myndbönd og viðtöl frá leiknum munu birtast innan skamms.

-Nánari umfjöllun um leikinn síðar..

-Sigur KR, 105-89 og Keflvíkingar eru úr leik

-104-86 og öll nótt úti hjá Keflavík

-Keflvíkingar eru skiljanlega pirraðir og mönnum er heitt í hamsi

-1:30 eftir og munurinn 16 stig. Keflvíkingar virðast vera á leið í sumarleyfi, því miður.

-Það liggur við slagsmálum en dómarar ná að halda leiknum niðri

-Thomas Sanders er æfur eftir að Brynjar braut á honum

-KR-ingar byrjaðir að kyrja sigursöngva þegar rúmar 2 mínútur eru til leiksloka, 96-80 fyrir KR.

-94-74 fyrir KR þegar 4 mínútur eru eftir, það þarf kraftaverk til að Keflvíkingar komist inn í leikinn

-Munurinn 12 stig og 5 mínútur eftir, enn er von hjá Keflvíkingum

-Staðan 90-74 þegar 6 mínútur eru til leiksloka

-Keflvíkingar eiga í mestu vandræðum með Brynjar Björns, hann er kominn með 31 stig

-Jón Norðdal Hafsteinsson klúðrar tveimur vítum og KR skorar á hinum endanum. Staðan 85-66 fyrir KR

-81-66 fyrir KR og stemningin er öll þeirra megin

-Munurinn er kominn niður í 13 stig, enn er von

-70-52 fyrir KR og Keflvíkingar alls ekki líklegir til afreka á þessari stundu

-Sanders og Ciric eru með 34 af 48 stigum Keflavíkur, aðrir verða að stíga upp ef þetta á að hafast

-Munurinn hefur náð 20 stigum og útlitið að dekkjast hjá Keflvíkingum. 68-48.

-Nú verða Keflvíkingar að fara í gang

-65-46 fyrir KR og Keflvíkingar taka leikhlé þegar rúmar 3 mínútur eru liðnar af þriðja leikhluta

-KR komið 17 stigum yfir eftir mínútu leik, 59-42.

-Marcus Walker skorar fyrstu körfuna í seinni hálfleik en hann er kominn með 17 stig og hefur reynst Suðurnesjamönnum erfiður

-Seinni hálfleikur er að hefjast og 13 stig skilja liðin að, nú verða Keflvíkingar að spýta í lófana ef ekki á illa að fara

-Hálfleikstölur 55-42 KR-ingum í vil eftir að þeir sigruðu annan leikhluta með 20 stiga mun, 32-12.

-55-42 fyrir KR og ekkert ratar ofan í hjá Keflvíkingum

-Guðjón Skúlason verður allt annað en rólegur þegar gegnið verður til búningklefa innan skamms, það tel ég öruggt.

-Þvílíkur viðsnúningur hjá KR! Þeir eru komnir 8 stigum yfir, 50-42 og hafa sallað 30 stigum á Keflavík í leikhlutanum

-48-42 fyrir KR þegar rúm mínúta er til leikhlés

-KR hefur verið betri aðilinn í öðrum leikhluta og skorað 18 stig gegn 9 hjá Keflavík, þó eru 3 mínútur eftir og allt getur gerst

-KR-ingar komnir yfir þegar 4 mínútur eru til hálfleiks 41-39 en þeir hafa verið beittir síðustu mínútur meðan Keflvíkingar eiga í vandræðum í sóknarleiknum

-Rétt innan við 5 mínútur til leikhlés og staðan er 39-39

-Jafnt 33-33 og Brynjar Björnsson er að hitna hjá KR

-Annar leikhluti rúllar af stað og Magnús Gunnarsson byrjar með þriggjastigakörfu, munurinn orðinn 8 stig, 25-33 Keflvíkingum í vil

-Fyrsta leikhluta er lokið og Keflvíkingar eru yfir 23-30 og Thomas Sanders er að fara á kostum

-Hann setur svo tvö víti niður og er kominn með 16 stig kappinn - Staðan 23-30

-Sanders með þrist, 23-28 fyrir Keflavík

-Brynjar Björnsson er þegar kominn með 10 stig hjá KR

-Magnús Gunnarsson kemur inn á fyrir Keflavík í fyrsta sinn í kvöld

-Thomas Sanders og Andrija Ciric byrja vel í kvöld. Sanders með 11 stig og Ciric með 7 þegar staðan er 21-25 og KR tekur leikhlé

-Hörður Axel svarar af bragði með þrist, 17-20 Keflavík

-3:16 eftir og KR jafnar með þrist frá Skarphéðni Ingasyni, 17-17

-Nokkur skot fara forgörðum en staðan er 14-15 þegar nákvæmlega 4 mínútur eru eftir að fyrsta leikhluta

-Allt í járnum í leiknum, rúmar 5 mínútur eftir að fyrsta leikhluta og staðan er 12-13 fyrir Keflavík. Leikhlé í augnablikinu

-Rúmar 3 mínútur liðnar og staðan 6-10 fyrir Keflavík, þeir eru duglegir við að koma sér á vítalínuna í augnablikinu

-Ein og hálf mínúta liðin og staðan er 4-6 Keflvíkingum í vil, Sanders er komin með 4 stig

-Jæja góðir hálsar, þá er þetta hafið og Keflvíkingar skora fyrstu stigin, það gerið Sigurður Þorsteinsson af vítalínunni


Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Andrija Ciric hefur verið drjúgur í fyrri hálfleik




VF-mynd: Keflvíkingar hita upp fyrr í kvöld

Hér má sjá mannhafið á leiknum sem er í þann mund að hefjast