Köstuðu frá sér sigrinum á lokakaflanum
Snæfell vann toppslaginn
Keflvíkingar lutu í lægra haldið gegn Snæfell í toppslag Domino's deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Keflvíkingar sem léku á heimavelli höfðu forystu bróðurpart leiksins en tókst illa að hrista gestina af sér. Að lokum fór það svo að Snæfellskonur náðu forystu í síðasta leikhlutanum og létu hana ekki af hendi. Keflvíkingar virtust hafa leikinn í hendi sér og fóru í raun illa að ráði sínu á köflum. Lokatölur 71-76 og Snæfelingar því einir á toppi deildarinnar.
Hjá Keflavík var Carmen Thomas best en hún hefur þó átt betri daga. Birna Valgarðs var sterk en hún skoraði 14 stig í leiknum.
Keflavík-Snæfell 71-76 (15-16, 18-14, 17-14, 21-32)
Keflavík: Carmen Tyson-Thomas 19/11 fráköst/8 stolnir, Birna Ingibjörg Valgarðsdóttir 14/7 fráköst, Sandra Lind Þrastardóttir 11/5 fráköst, Marín Laufey Davíðsdóttir 10, Ingunn Embla Kristínardóttir 9/8 fráköst, Sara Rún Hinriksdóttir 6/5 fráköst, Bríet Sif Hinriksdóttir 2, Thelma Dís Ágústsdóttir 0, Emelía Ósk Gunnarsdóttir 0, Hallveig Jónsdóttir 0, Elfa Falsdottir 0, Lovísa Falsdóttir 0.
VF/myndir Eyþór Sæmundsson.