Körfuknattleikur: Dregið í Hópbílabikarnum
Dregið hefur verið í Hópbílabikarkeppni karla í körfuknattleik fyrir leiktímabilið 2005-2006. Njarðvíkingar mæta nýliðum Hattar í keppninni, Keflvíkingar fá 1. deildar lið Stjörnunnar og Grindvíkingar mæta Haukum. Leikið er heima og að heiman, ekki er ljóst hvaða félög mætast í 8-liða úrslitum kvenna en þar eiga félögin í 1. deild fast sæti.
Hægt er að skoða fyrstu drög að niðurröðun leikja í keppninni með því að smella hér.
www.kki.is
VF-mynd/ frá leik Njarðvíkinga og Snæfells í úrslitaleik Hópbílabikarsins