Körfuknattleiksmót fyrir 7. flokk kvenna
Laugardaginn 2. júní næstkomandi er fyrirhugað að halda körfuknattleiksmót í Grindavík fyrir stúlkur í 7.flokki kvenna. Tilefnið er hátíðin Sjóarinn síkáti sem jafnan er fjölmenn og skemmtileg hátíð í Grindavík. Á svæðinu verða hinar ýmsu uppákomur og skemmtanir sem börnin og fullorðnir geta tekið þátt í.
Mótið verður spilað frá kl. 10:00 um morguninn og fram eftir degi. Þegar hafa fjögur lið skráð sig í mótið. Nú er tímabilið á enda og er þetta kjörið tækifæri til að enda tímabilið með stæl, vonandi koma sem flest lið.
Þátttökugjald 2000kr. á hvert lið og verða verðlaun fyrir fyrsta sæti mótsins. Þeir sem ætla að taka þátt vinsamlegast hafið samband við Ellert Sig. Magnússon í síma: 426 7036 eða 822 3100. Einnig er hægt að senda tölvupóst á [email protected]