Körfuknattleiksdeild UMFG fær góðan liðstyrk
Körfuknattleikskonan Íris Sverrisdóttir hefur tekið fram skóna á ný og hefur skrifað undir samning við sitt gamla félag, Grindavík. Íris snýr aftur heim til Grindavíkur eftir að hafa leikið um hríð með Haukum. Fram kemur á vef Grindavíkurbæjar að nokkrir aðrir leikmenn hafi skrifað undir samning við Körfuknattleiksdeild Grindavíkur.
Daníel Guðni Guðmundsson skrifaði einnig formlega undir sinn samning við sama tækifæri en hann mun þjálfa liðið næstu tvö ár og jafnframt spila með karlaliðinu. Þá skrifuðu þrjár ungar og efnilegar stúlkur einnig undir tveggja ára samninga en það eru þær Halla Garðarsdóttir, Hrund Skúladóttir og Jeanne Sicat.
Fram kemur að stjórn Körfuknattleiksdeildar UMFG sé gríðarlega ánægð með þessar undirskriftir og bindi miklar vonir við stelpurnar og Daníel. Það sé ljóst að það sé þjálfaranum mikill léttir að fá Írisi til liðs við hópinn á ný, enda hafi kvarnast nokkuð úr honum frá síðasta ári. Pálína Gunnlaugsdóttir skrifaði á dögunum undir hjá Haukum og þá er óvíst hvenær þær María Ben og Ingibjörg Jakobsdóttir komast aftur af stað þar sem María er barnshafandi og Ingibjörg að jafna sig eftir meiðsli.
Á myndinni eru frá vinstri: Lórenz Óli, formaður kkd. UMFG, Hrund, Jeanne, Daníel Guðni, Halla og Íris