Körfuboltinn kominn í gang, Njarðvík vann ÍR

Njarðvíkingar voru án flestra lykilmanna sinna, en ungu leikmennirnir fengu færi á að láta ljós sitt skína.
Guðmundur Jónsson fór fremstur í flokki Njarðvíkinga og skoraði 28 stig, Jóhann Ólafsson skoraði 17 stig og tók 13 fráköst, Ólafur Ingvason skoraði 16 stig og Kristján Sigurðsson skoraði 11.
Þá átti Egill Jónasson stórleik undir körfunni þar sem hann tók 15 fráköst og varði heil 10 skot.
Njarðvík leikur gegn KR í kvöld og svo gegn Fjölni á morgun.