HSS
HSS

Íþróttir

Körfuboltinn fer aftur í gang
Meistaraflokkur kvenna hjá Keflavík eiga fyrsta leik eftir hlé. VF-mynd: Páll Orri
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
miðvikudaginn 14. apríl 2021 kl. 20:46

Körfuboltinn fer aftur í gang

Körfuknattleikssamband Íslands hefur gefið út breytta leikjadagskrá eftir að samkomutakmarkanir leyfa æfingar og keppni á ný.

Domino's-deild kvenna:

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Domino's-deildarlið Keflavíkur kvenna ríður fyrst á vaðið af Suðurnesjaliðunum eftir að æfinga- og keppnisbann hefur varað í þrjár vikur. Keflavík mætir Skallagrími í Borgarnesi miðvikudaginn 21. apríl næstkomandi klukkan 19:15.

Keflavík hefur 24 stig og deilir toppsætinu með Val en Skallagrímur er í fimmta sæti með tólf stig.

Hér má sjá leikjadagskrá Domino's-deildar kvenna

Domino's-deild karla:

Degi síðar hefst Domino's-deild karla á ný en Suðurnesjaliðin hefja ekki leik fyrr en föstudaginn 23. apríl. Þá verður Suðurnesjaslagur þegar Grindavík og Njarðvík mætast í HS Orku-höllinni í Grindavík og hefst leikurinn klukkan 18:15. Grindvíkingar eru í fimmta sæti með sextán stig á meðan Njarðvíkingar hafa tapað sex síðustu leikjum og eru komnir í tíunda sæti með tíu stig.

Tveimur tímum síðar (20:15) mætir topplið Keflavíkur Stjörnunni í Blue-höllinni en Keflavík er með 28 stig á meðan Stjarnan hefur 22 stig í öðru til þriðja sæti ásamt Þór Þorlákshöfn.

Hér má sjá leikjadagskrá Domino's-deildar karla

1. deild kvenna:

24. apríl fer meistaraflokkur kvenna Njarðvíkur til Ísafjarðar og mætir Vestra klukkan 18:00.

Njarðvíkingar leika svo aftur 27. apríl en þá í Njarðtaks-gryfjunni klukkan 19:15.

Grindavík keppir einnig þann 27. apríl og leikur gegn liði Hamars/Þórs í Hveragerði. Leikur þeirra hefst líka klukkan 19:15.

Njarðvík er í öðru sæti með tuttugu stig, tveimur stigum á eftir ÍR. Grindavík er í þriðja sæti með sextán stig.

Hér má sjá leikjadagskrá 1. deildar kvenna


Miðað við breytta leikjadagskrá KKÍ lýkur keppni í Domino's-deild og 1. deild kvenna þann 8. maí en keppni í Domino's deild karla lýkur 10. maí.

KKÍ vinnur hörðum höndum að því að teikna upp úrslitakeppni deildanna og von er á keppnisdagatali úrslitakeppninnar á næstu dögum.