Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Körfuboltatímabilinu slitið - Engir Íslandsmeistarar krýndir
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 18. mars 2020 kl. 14:04

Körfuboltatímabilinu slitið - Engir Íslandsmeistarar krýndir

Niðurstaða stjórnar Körfuknattleikssambands Íslands miðað við það ástand sem við blasir er sú að ekki verður keppt frekar á keppnistímabilinu 2019/2020. Einnig samþykkti stjórn KKÍ eftirfarandi á fundi sínum, miðvikudaginn 18. mars 2020:

  1. Enginn Íslandsmeistari verður krýndur tímabilið 2019/2020.

  2. Sú niðurstaða sem deildarkeppni Domino’s deilda og 1. deilda hefur þegar gefið okkur ræður.
    i. Fjölnir fellur niður í 1. deild karla.
    ii. Valur er deildarmeistari Domino’s deildar kvenna og Fjölnir deildarmeistari 1. deildar kvenna.
  3. Núverandi stöðutafla er lokastaða Domino’s deilda og 1. deilda tímabilið 2019/2020. Það þýðir að,
    1. Stjarnan er deildarmeistari Domino’s deildar karla.
    2. Höttur er deildarmeistari 1. deildar karla og vinnur sér sæti í Domino’s
      deildinni tímabilið 2020/2021. Engin frekari breyting verður á Domino’s
      deild karla.

    3. Grindavík fellur úr Domino’s deild kvenna. Fjölnir er deildarmeistari 1. deildar
      kvenna og vinnur sér sæti í Domino’s deildinni tímabilið 2020/2021. Engin frekari breyting verður á Domino’s deild kvenna.

Vegna þeirra aðstæðna sem uppi eru og hafa stuðlað að ótímabærum lokum keppnistímabilsins 2019/2020 má ljóst vera að mörg félög muni lenda í fjárhagsvanda vegna talsverðs tekjumissis. Það sama mun gilda um fjárhag KKÍ. Það verður verðugt verkefni allra hlutaðeigandi að takast á við þann vanda.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024