Konráð og Davíð keppa á Norðurlandamótinu í boccia
Norðurlandamót fatlaðra í boccia fer fram á Íslandi dagana 11.-13. maí næstkomandi. Íslenski hópurinn hefur þegar verið valinn en hann skipa 25 keppendur frá átta aðildarfélögum ÍF. Mótið mun fara fram í Laugardalshöll og er búist við því að um 100 erlendir keppendur mæti til leiks og að um 350 manns komi að mótinu. Frá Nes mæta tveir keppendur til leiks en það eru þeir Konráð Ragnarsson og Davíð Már Gunnarsson sem báðir eru flokki 4.
Á efri mynd er Konráð annar frá hægri