Bygg
Bygg

Íþróttir

Koma fyrstu stigin í hús í kvöld?
Sunnudagur 17. maí 2015 kl. 09:00

Koma fyrstu stigin í hús í kvöld?

Keflvík tekur á móti Breiðablik á Nettóvellinum

Keflvíkingar taka í kvöld á móti liði Breiðabliks í 3. umferð Pepsí deildar karla. 

Keflvíkingar leita að fyrstu stigum sínum þetta sumarið en liðið hefur beðið ósigur gegn Víkingum og FH í fyrstu tveimur umferðum mótsins þrátt fyrir að hafa leikið ágæta knattspyrnu á köflum og t.a.m. fengið fín færi til að ógna liði FH í síðustu umferð. Leikmenn og þjálfarar Keflvíkur hafa talað um að ekkert óðagot sé í herbúðum þeirra enda of lítið liðið á mótið til að draga stórar ályktanir. 

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fyrir mót var liðinu spáð 8. sætinu og hefur liðið leikið gegn liðum sem hafa tekið 6 stig (FH) og 4 stig (Víkingur) úr sínum leikjum fram að þessu. Lið Breiðabliks hefur gert jafntefli í fyrstu tveimur leikjum sínum og situr liðið í 7. sæti með 2 stig.  

Leikurinn hefst kl. 20:00 á Nettóvellinum