HSS
HSS

Íþróttir

Knattspyrnuveisla í Reykjaneshöllinni í dag
Laugardagur 19. mars 2011 kl. 09:26

Knattspyrnuveisla í Reykjaneshöllinni í dag

Mikið fjör verður í Reykjaneshöllinni í dag en fjórir leikir í Lengjubikarnum munu fara fram þar síðdegis. Samfleytt verður leikið frá hádegi til klukkan 20 í kvöld og eru Suðurnesjaliðin í eldlínunni.

Grindvíkingar mæta BÍ/Bolungarvík klukkan 14:00, Klukkan 16:00 fer fram leikur Keflavíkur og KR og klukkan 18:00 taka Njarðvíkingar á móti Tindastól.

FH-ingar og Stjarnan munu einnig eigast við í Reykjaneshöll í dag og hefst sá leikur klukkan 12:00.

Mynd/ Bæði Keflavík og Grindavík verða í eldlínunni í dag.

Bílakjarninn
Bílakjarninn