Bygg
Bygg

Íþróttir

Knattspyrnusvæðið í Vogum nefnt Nesbyggðarvöllur
Mánudagur 30. mars 2009 kl. 14:58

Knattspyrnusvæðið í Vogum nefnt Nesbyggðarvöllur

Meistaraflokksráð Ungmennafélagsins Þróttar í Vogum (UMFÞ) og Nesbyggð ehf. hafa gert með sér  tveggja ára samning þess efnis að heimavöllur félagsins mun heita Nesbyggðarvöllurinn.

Samningurinn var handsalaður af Marteini Ægissyni, formanni meistaraflokksráðs og Páli Harðarsyni framkvæmdarstjóra Nesbyggðar ehf.  Er þessi samningur mikill hvalreki fyrir starfsemi deildarinnar og sérstaklega í þessu árferði sem við búum við þessa dagana, segir í tilkynningu frá UMFÞ.

Aðspurður lýsti Marteinn Ægisson hjá Nesbyggð mikilli ánægju með þennan samning og vildi við sama tækifæri hvetja Vogamenn, nær og fjær, til að vera duglega að leggja leið sína á Nesbyggðarvöllinn á komandi sumri og styðja strákana.

Bílakjarninn
Bílakjarninn