Bygg
Bygg

Íþróttir

Knattspyrnuskóli Reynis sumarið 2009
Mánudagur 29. júní 2009 kl. 15:53

Knattspyrnuskóli Reynis sumarið 2009

Í sumar verður Knattspyrnudeild Reynis með knattspyrnuskóla fyrir krakka á aldrinum 6 – 16 ára. Knattspyrnuskólinn stendur yfir á milli kl. 14:00 og 17:00 frá mánudag til fimmtudags. Lögð verður áhersla á kennslu í grunnþáttum knattspyrnunnar með skemmtilegum leikjum og æfingum. Margt verður einnig til gamans gert og munu meðal annars þekkt andlit af báðum kynjum úr íslensku knattspyrnunni kíkja í heimsókn. Auk þess verða margs konar keppnir s.s. HM, vítakeppni og knattþrautir. Leiðbeinendur skólans verða þeir Sinisa Kekic, Ómar Bendtsen og Kristján Óli Sigurðsson.

Knattspyrnuskólinn stendur yfir í 3 vikur frá 6. júlí – 23. júlí. Hægt verður að skrá sig á hverja viku, en skólinn er þó settur upp miðað við þátttöku í þessar 3 vikur.

Vika 1                  6. júlí - 9. júlí

Vika 2                13. júlí - 16. júlí

Vika 3                20. júlí - 23. Júlí

Verð 5.000.-  krónur vikan, en verð 12.000.- krónur í 3 vikur. Veittur er 20% systkinaafsláttur. Hægt er að nýta sér hvatningastyrk Sandgerðisbæjar. Skáning fer fram í Reynisheimilinu dagana  29. júní - 5. júlí frá kl. 08:00-17:00, einnig er hægt að ská sig á netfanginu [email protected] eða hjá Lúlla í síma: 898-4697.

Hvetjum alla til að skrá sig,
Knattpyrnudeild Reynis í Sandgerði  


Bílakjarninn
Bílakjarninn