Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Knattspyrnumót grunnskóla Reykjanesbæjar
Fimmtudagur 2. október 2003 kl. 17:53

Knattspyrnumót grunnskóla Reykjanesbæjar

Mánudaginn 29. september var haldið knattspyrnumót grunnskólanna í Reykjanesbæ, en mótið var haldið í Reykjaneshöllinni. Þetta er annað árið sem þessi keppni er haldin en nú var keppt í stúlknaflokki í fyrsta sinna. Úrvalslið úr 8-10. bekkjum skólanna öttu kappi og var barist hart en drengilega. Holtaskóli vann í stúlknaflokki báða sína leiki og hlaut 4 stig. Myllubakkaskóli varð í öðru sæti með 1 stig og hagstæðari markatölu en Heiðarskóli sem hlaut einnig eitt stig. Heiðarskóli vann öruggan sigur í drengjaflokki annað árið í röð. Þeir hlutu fullt hússtiga, unnu alla sína leiki. Í öðru sæti varð Njarðvíkurskóli með 4 stig, í því þriðja var Holtaskóli með 2 stig og lestina rak Myllubakkaskóli.

VF-ljósmynd/Kristín Njálsdóttir: Stelpurnar úr Holtaskóla unnu í stúlknaflokki.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024