Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Knattspyrnumaðurinn Jósef Kristinn fór holu í höggi
Sunnudagur 10. júlí 2011 kl. 16:12

Knattspyrnumaðurinn Jósef Kristinn fór holu í höggi

Knattspyrnumaðurinn Jósef Kristinn Jósefsson, sem er á mála hjá búlgarska félaginu PSFC Chernomorets Burgas, er einnig flinkur kylfingur og gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 8. holu Húsatóftavallar í vikunni. Jósef er með 9,8 í forgjöf og ágætur kylfingur. Draumahöggið var þó nokkuð sérstakt hjá Jósef sem skallaði boltann af teig á þessari tæplega 140 metra löngu golfholu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

„Ég skallaði boltann og það var svo mikil sól á móti okkur að við sáum aldrei boltann lenda. Ég byrjaði á því að leita í glompunni fyrir aftan holuna og í kringum flötina. Eftir nokkra leit ákvað ég að kíkja ofan í holuna og þar lá boltinn. Þetta var hrikalega gaman en leiðinlegt að sjá ekki þegar boltinn fór niður. Ég fagnaði nú ekkert allt of mikið og hefði kannski átt að gera meira af því,“ sagði Jósef sem sló högginu með 8-járni.

Jósef er annar kylfingurinn til að fara holu í höggi á 8. braut á Húsatóftavelli sem er erfið par-3 hola. Hann fékk einnig örn á 15. holu á hringnum og lék hringinn samtals á 74 höggum eða þremur höggum yfir pari. Jósef segir að þrátt fyrir að hann hafi farið holu í höggi sé hann ekki að fara leggja meiri áherslu á íþróttina.

„Þetta er í fjórða skiptið sem ég fer í golf í sumar. Ég fer bara í golf þegar ég nenni og þetta breytir ekki miklu,“ segir Jósef sem er 22 ára gamall og lék með U-21 árs landsliði Íslands í undankeppninni fyrir Evrópumótið sem fram fór í sumar.

Mynd/vf.is: Jósef Kristinn t.h. hér í leik með Grindavík á síðustu leiktíð.