Knattspyrnufélagið Reynir 75 ára í dag
Í dag eru liðin 75 ár frá því Knattspyrnufélagið Reynir var stofnað í Sandgerði.
Það var sunnudaginn 15. september 1935 sem nokkrir ungir menn úr Sandgerði komu saman í skólahúsinu sem þá stóð við Skólatjörnina og stofnuðu félag til að spila saman knattspyrnu. Félagið ákváðu þeir að nefna Knattspyrnufélagið Reyni. Á stofnfundinum var jafnframt ákveðið hvernig búningar félagsins ættu að vera og er enn í dag farið eftir þeirri ákvörðun. Reynismerkið, sem allir þekkja, varð hins vegar ekki til fyrr en um 25 árum seinna þegar eini núlifandi stofnfélaginn, Sveinn Pálsson, teiknaði upp merkið á blað í eldhúsinu heima hjá sér.
Saga Knattspyrnufélagsins Reynis er merkileg enda hefur félagið verið ein af grunnstoðum mannlífs í Sandgerði þau 75 ár sem það hefur verið til. Í dag er stunduð knattspyrna, körfuknattleikur og sund á vegum Reynis og ljóst að litla félagið sem var stofnað við Skólatjörnina fyrir 75 árum er við góða heilsu.
Afmæli félagsins verður fagnað á árshátíð knattspyrnudeildar í Samkomuhúsinu næstkomandi laugardag.