Knattspyrnudeild Keflavíkur segir framkvæmdastjóranum upp
Síðastliðinn föstudag sagði knattspyrnudeild Keflavíkur framkvæmdastjóra sínum, Jóni Pétri Róbertssyni, upp störfum. Jón Pétur hafði aðeins starfað hjá deildinni í stuttan tíma, eða frá 15. október síðastliðnum, og vildi ekkert láta hafa eftir sér í viðtali við Víkurfréttir nema að hann væri niðurbrotinn maður eftir uppsögnina. Rúnar Arnarson, formaður knattspyrnudeildarinnar vildi ekki láta hafa neitt eftir sér í þessu máli.