Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Knattspyrna: Hólmar Örn og Guðjón Árni fyrirliðar
Fimmtudagur 2. apríl 2009 kl. 10:57

Knattspyrna: Hólmar Örn og Guðjón Árni fyrirliðar


Þjálfarar meistaraflokksliðs Keflavíkur, þeir Kristján Guðmundssin og Einar Ásbjörn Ólafsson,  hafa tilkynnt hverjir verða fyrirliðar liðsins á komandi keppnistímabili.  Það kemur í hlut Hólmars Arnar Rúnarssonar að taka sæti Guðmundar Steinarssonar sem fyrirliði númer eitt.  Guðmundur var fyrirliði liðsins á síðasta ári ásamt Guðjóni Árna Antoníussyni og Ómari Jóhannssyni. 

„Eftir að við Einar höfðum legið yfir þessu í töluverðan tíma þá varð þetta niðurstaðan, að fyrirliðastöðuna skipuðu tveir leikmenn með mismunandi verkaskiptingu.  Að Hólmar kæmi inn í hutverk Guðmundar frá seinasta tímabili.  Guðjón og Guðmundur skiluðu þessu hlutverki frábærlega seinasta sumar ásamt Ómari og okkur finnst að þetta fyrirkomulag henti bæði Hólmari og Guðjóni og ekki síst liðinu í heild mjög vel,“ segir Kristján í samtali við tíðindamann Keflavíkurvefsins.

Kristján var inntur eftir því hver staðan væri með Ómar, sem hefur átt við meiðsli að stríða.  „Ómar er að sjálfsögðu áfram í fyrirliðahópnum og þótt hann verði ekki áberandi á vellinum í sumar þá er hann í kringum okkur á æfingum og í öðru starfi okkar liðs sem einn af leiðtogum hópsins.  Staðan á honum er einfaldlega sú að hann er með höndina í fatla eftir vel heppnaða aðgerð á öxlinni og er staðráðinn í því að koma öflugur til baka seinna á þessu ári,“ sagði Kristján.

Keflvíkurliðið er nú í óða önn að undirbúa sig fyrir komandi keppnistímabil sem hefst 9. maí þegar liðið tekur á móti FH.
-----

Mynd/Jón Örvar/keflavik.is – Guðjón Árni og Hólmar Örn verða fyrirliðar á komandi keppnistímabili.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024