KKÍ kærir ummæli Ólafs
Stjórn KKÍ hefur ákveðið að kæra ummæli Grindvíkingsins Ólafs Ólafssonar sem hann lét falla eftir leik KR og Grnidavíkur þann 28. apríl sl. en þar sagði hann Grindvíkinga hafa leikið „eins og fermingarstelpur á túr.“
Stjórn KKÍ fordæmir ummælin sem Ólafur Ólafsson viðhafði í beinni útsendingu eftir leik en í yfirlýsingu sem KKÍ sendi frá sér segir að það sé mat stjórnar að ummæli sem þessi skaði ímynd körfuknattleikshreyfingarinnar og að Ólafur þurfi að bera ábyrgð á þeim.
„Stjórn KKÍ hefur farið yfir málið og ákveðið að kæra ummæli Ólafs til aga- og úrskurðarnefndar. Samkvæmt lögum og reglugerðum KKÍ hefur aga- og úrskurðarnefnd ein vald til þess að beita viðurlögum í málum sem þessum. Öll ummæli sem þessi eru með öllu óviðeigandi og eiga ekki heima í körfuknattleikssamfélagi okkar. Einstaklingar þurfa að passa sig hvað þeir segja í viðtali við fjölmiðla sem og á samfélagsmiðlum og þá sérstaklega þeir aðilar sem eru fyrirmyndir barna og unglinga. Stjórn KKÍ telur að Ólafur sé maður að meiri fyrir að hafa beðist afsökunar fljótlega eftir að leik lauk í gærkvöldi. Sendi hann afsökunarbeiðni á fjölmiðla sem og birti á samfélagsmiðli. Harmaði hann orð sín og baðst afsökunar.
Aga- og úrskurðarnefnd mun því nú fjalla um málið samkvæmt reglugerð,“ segir í yfirlýsingunni.