KÍNVERSKT YOGA Á PERLUNNI
Boðið verður upp á kínverskt yoga á Perlunni í vetur. Matti Osvald er að fara af stað með nýtt átta vikna námskeið sem verður á mánudags- og miðvikudagskvöldum og stendur frá kl. 19:50 til 21:00 bæði kvöldin.Matta ættu allir í Reykjanesbæ að þekkja og hann sagðist í samtali við blaðið fullur tilhlökkunar að koma aftur í heimabæinn til að kenna yoga. „Ég hef kosið að kalla þetta kínverskt yoga en ég hef kennt samskonar námskeið í Kópavogi undanfarin ár við miklar vinsældir. Þetta er ekkert hopp og læti, heldur skemmtileg blanda af kínverskum Tai chi æfingum,sem flestir ættu að kannast við , Chi kung og liðkandi teygjum í róandi andrúmslofti“.- Fyrir hverja er þetta yoga?„Kínverskt yoga hentar öllum aldurshópum og ég hef verið að fá tíl mín fólk í tíma á aldrinum 18-70 ára. Þetta hentar vel bæði stressuðu og eða mjög þreyttu fólki sem vill stilla sig af. Þessar æfingar styrkja einnig léleg bök og ýmsa aðra líkamlega kvilla s.s. verki og vanlíðan. og er almennt góð líkamleg og andleg stilling.Skráning er hafin á Perlunni.