Kinga náði frábærum árangri
9 ára bráðefnilegur golfari
Hin níu ára bráðefnilega golfkona, Kinga Korpak frá Suðurnesjum, hafnaði í 2. sæti í Íslandsmóti unglinga í höggleik um sl. helgi. Kinga keppti í flokki 14 ára og yngri en þar er hún töluvert yngri en andstæðingar sínir. Mótið fór fram á Hólmsvelli í Leiru.
Þeir sem eru kunnugir golfíþróttinni segja hikstalaust að Kinga sé ein af efnilegri kvenkylfingum landsins og eigi framtíðina fyrir sér í golfinu.
Kinga er töluvert smávaxnari en andstæðingar sínir, en hún er hér lengst til vinstri á myndinni.