Bygg
Bygg

Íþróttir

Kinga Korpak Íslandsmeistari í holukeppni 14 og yngri
Kinga Korpak úr Golfklúbbi Suðurnesja.
Mánudagur 23. júní 2014 kl. 09:36

Kinga Korpak Íslandsmeistari í holukeppni 14 og yngri

Kinga Korpak úr Golfklúbbi Suðurnesja varð um helgina Íslandsmeistari í holukeppni í flokki 14 ára og yngri í stúlknaflokki. Korpak og Andrea Ýr Ásmundsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar áttust við í úrslitaleiknum og hafði Korpak betur 5/4. Snædís Ósk Aðalsteinsdóttir frá Golfklúbbnum Hamri á Dalvík varð þriðja en hún sigraði Zuzanna Korpak úr GS 2/0.

Í undanúrslitum mættust systurnar Kinga og Zuzanna og lauk þeim leik með 1/0 sigri Kinga. Í hinni viðureigninni áttust við Andrea og Snædís og þar hafði Andrea betur 4/2.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Kinga er aðeins 10 ára gömul og er þetta þriðja mótið í röð sem hún vinnur á Íslandsbankamótaröðinni á þessu tímabili. Mótið fór fram á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi.

Þá varð Birkir Orri Viðarsson í 2. sæti í drengjaflokki 14 ára og yngri. Hann lék best í undankeppninni og vann þrjá andstæðinga sína á leið í úrslitaleikinn sem hann tapaði í spennandi leik gegn Sigurði A. Garðarssyni úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

Zuzanna Korpak úr GS hafnaði í fjórða sæti.