Bygg
Bygg

Íþróttir

Kílóin hrynja af Scott Ramsay - „Leit út eins og Jabba the Hutt“
Miðvikudagur 21. mars 2012 kl. 13:44

Kílóin hrynja af Scott Ramsay - „Leit út eins og Jabba the Hutt“



Scott Ramsay, leikmaður Grindvíkinga í Pepsi deild karla í knattspyrnu, hefur losað sig við 14 kíló það sem af er þessu ári. Ramsay var ansi þungur í kringum áramótin en hann ákvað að taka sig taki þá.

,,Ég varð að gera eitthvað. Ég var farinn að líta út eins og Jabba the Hutt í Star Wars,“ sagði Ramsay hlæjandi í samtali við Fótbolta.net í dag en hann var orðinn 100 kíló í kringum áramót. ,,Ég hef nokkrum sinnum verið þungur í hreinskilni sagt og áður en að ég byrjaði í átakinu var ég meira en 100 kíló, ég viðurkenni það.“

Ramsay tók matarræðið föstum tökum og það hefur strax borið árangur. ,,Ég fékk sérstakt megrunarprógram hjá Helga Jónasi (Guðfinnssyni) körfuboltaþjálfara í Grindavík og það er að virka,“ en Helgi er einkaþjálfari að mennt.

Ramsay gat ekki æft framan af vetri vegna ökklameiðsla en hann er nú búinn að jafna sig af þeim. Þessi knái leikmaður verður 36 ára á árinu en hann segist eiga nóg eftir.

,,Mér finnst það og ég er að komast í betra form. Keli (Sinisa Valdimar Kekic) er ennþá að spila og hann er 42 ára,“ sagði Ramsay að lokum.

Frétt frá Fótbolta.net.

Bílakjarninn
Bílakjarninn