Bygg
Bygg

Íþróttir

Kennslustund fyrir Blikakonur
Mánudagur 24. október 2005 kl. 15:34

Kennslustund fyrir Blikakonur

Keflavíkurkonur burstuðu Breiðablik, 50-106, í Iceland Express deild kvenna s.l. laugardag. Leikurinn fór fram í Smáranum í Kópavogi en heimavöllurinn dugði skammt gegn sterkum Íslandsmeisturunum sem tóku Blika í kennslustund.

Breiðablik tókst að hanga í pilsfaldi Keflavíkur í fyrsta leikhluta en að honum loknum var staðan 13-25 fyrir Keflavík. Áður en blásið var til leikhlés höfðu Keflavíkurkonur aukið muninn upp í 23 stig og staðan í hálfleik 25-48.

Í seinni hálfleik sáu Blikakonur aldrei til sólar og leiknum lauk með 56 stiga sigri Keflavíkur, 50-106, og ljóst að Íslandsmeistararnir ætla ekki að láta titilinn baráttulaust af hendi í ár.

Reshea Bristol var nálægt því að landa tvöfaldri þrennu en hún gerði 28 stig, stal 12 boltum og gaf 7 stoðsendingar. Næst henni var Birna Valgarðsdóttir með 22 stig.

Tölfræði leiksins

Næsti leikur Keflavíkurliðsins er sunnudaginn 30. október kl. 17:00 en þá mæta þær Haukum að Ásvöllum.

Bílakjarninn
Bílakjarninn