Kennslustund á Keflavíkurvelli
Eyjamenn voru sem vankaðar lundapysjur í höndum Keflvíkinga í Landsbankadeildinni í kvöld þegar Keflavík skellti gestum sínum 6-2.
Keflvíkingar eru nú í 3. sæti Landsbankadeildarinnar með 14 stig þegar tíu umferðum er lokið. Stefán Örn Arnarson og Þórarinn Kristjánsson gerðu báðir tvö mörk í leiknum en Guðmundur Steinarsson og Kenneth Gustafsson gerðu sitt markið hvor. Baldur Sigurðsson, leikmaður Keflavíkur var fluttur á brott með sjúkrabifreið, eftir að hafa fengið þungt höfuðhögg.
Það voru Eyjamenn sem gerðu fyrsta mark leiksins þegar Pétur Runólfsson lék á tvo varnarmenn Keflavíkur á vinstra vítateigshorninu. Pétur lét boltann svo vaða að marki og hafnaði hann í fjærhorninu, óverjandi fyrir Ómar í markinu. Keflavík 0-1 ÍBV.Eyjamenn voru sprækir eftir markið en Keflvíkingar jöfnuðu metin á 27. mínútu leiksins eftir hornspyrnu frá fyrirliðanum Guðmundi Steinarssyni.
Kenneth Gustafsson stökk þá manna hæst í teignum og skallaði boltann í netið. Keflavík 1-1 ÍBV.
Átta mínútum eftir jöfnunarmarkið lét Guðmundur aftur að sér kveða er hann skaut að marki ÍBV frá vinstri kanti en Hrafn Davíðsson, markvörður Eyjamanna, náði ekki að halda boltanum og Stefán sjóðheiti Arnarson fylgdi vel eftir og kom Keflavík í 2-1 og þannig stóðu leikar í hálfleik. Bo Henriksen og Kenneth Gustafsson fengu báðir að líta gult spjald fyrir ryskingar í fyrri hálfleik en það var aðeins upphafið af látunum sem síðar áttu eftir að verða.
Hólmar Örn Rúnarsson opnaði seinni hálfleikinn með fyrsta markskotinu en það fór vel framhjá. Skömmu síðar sendi Baldur Sigurðsson boltann fyrir markið og fann þar Stefán Örn sem sendi knöttinn í netið og kom Keflavík í
3-1 og þar með gerði Stefán sitt sjöunda mark í fjórum leikjum.
Adam var ekki lengi í Paradís því aðeins tveimur mínútum eftir þriðja mark Keflavíkur minnkuðu Eyjamenn muninn í 3-2 þegar Ulrik Drost vippaði yfir Ómar í Keflavíkurmarkinu eftir fína stungusendingu frá Bo Hendriksen inn fyrir vörnina.Á 71. mínútu leiksins var komið að Páls þætti Hjarðar þegar hann braut gróflega á Baldri Sigurðssyni í skallaeinvígi með þeim afleiðingum að flytja þurfti Baldur á brott með sjúkrabifreið. Páll fékk umsvifalaust rautt spjald fyrir árásina. Samkvæmt heimildum Víkurfrétta bólgnaði Baldur mikið á bak við annað eyrað en er á batavegi. Óhætt er að segja að Páll Hjarðar sé ekki manna vinsælastur hjá stuðningsmönnum Keflavíkur því fæstir hafa gleymt því er hann flugtæklaði Ingva Rafn Guðmundsson í Vestmannaeyjum á síðustu leiktíð með þeim afleiðingum að Ingvi hefur ekki leikið knattspyrnu síðan.
Einum manni færri voru Eyjamenn ekki smeykir við að fara í tæklingar og nokkur spjaldasúpa fylgdi í kjölfarið. Keflvíkingar stóðu árásir Eyjamanna af sér og röðuðu inn mörkunum þangað til Garðar Örn Hinriksson, dómari leiksins, flautaði leikinn af.
Á 78. mínútu var brotið á Guðjóni Antoníussyni fyrir utan teig ÍBV. Spyrnuna tók Guðmundur Steinarsson en Hrafn gat ekki haldið boltanum í marki Eyjamanna og aðvífandi kom varamaðurinn Þórarinn Kristjánsson og breytti stöðunni í 4-2.
Sex mínútum eftir mark Þórarins var svo komið að Guðmundi sjálfum þegar hann brunaði upp hægri kantinn og inn í vítateig og lét vaða á markið. Enn einu sinni í vætuveðrinu tókst Hrafni ekki að halda boltanum og hann lak inn og staðan því 5-2 Keflavík í vil.Á 88. mínútu leiksins varð niðurlæging Eyjamanna endanleg þegar Þórarinn Kristjánsson gerði sitt annað mark eftir fyrirgjöf fyrirliðans og 6-2 sigur Keflavíkur í höfn.
Keflvíkingar eru nú í 3. sæti deildarinnar með 14 stig og mæta Víkingum í Reykjavík næstkomandi þriðjudag.
VF-myndir/Þorgils