Keflvískur markvörður æfir hjá Huddersfield í Englandi
Sindri Kristinn Ólafsson, markmaður 2. flokks Keflavíkur í knattspyrnu er á leið til 1. deildarliðsins Huddersfield á Englandi. Þeir eru að leita að markmanni á þessum aldri. Sindri sem er með efnilegustu markmönnum landsins í sínum aldursflokki mun dvelja í vikutíma þarna úti við æfingar.
Eftirtaldir leikmenn Keflavíkur hafa verið valdir í úrtakshóp KSI vegna 17 ára liðs Íslands:
Yngri hópur:
Samúel Þór Traustason
Eldri hópur:
Sindri Kristinn Ólafsson
Anton Freyr Hauksson
Fannar Orri Sævarsson
Huddersfield er fornfrægt knattspyrnufélag í Englandi og var stofnað 1908. Liðið varð Englandsmeistari þrjú ár í röð frá árinu 1925. Liðið er nú í 1. deild.