Keflvíska landsliðspeyja dreymir um atvinnumennsku
- Davíð Snær Jóhannsson og Helgi Bergmann Hermannsson eiga framtíðina fyrir sér í fótboltanum
Æskuvinirnir Davíð Snær Jóhannsson og Helgi Bergmann Hermannsson báðir 15 ára eru aldeilis að gera það gott í fótboltanum. Þeir voru báðir valdir í U16 landsliðið og Davíð æfir með mfl Keflavíkur. VF lagði fyrir þá nokkrar laufléttar spurningar.
Með hvaða liði æfið þið og í hvaða flokki?
Davíð: Ég æfi með Keflavík og með meistaraflokki.
Helgi: Ég æfi með Keflavík og er í þriðja og öðrum flokki, ég spila sem markmaður.
Segið aðeins frá því sem þið eruð búnir að gera í landsliðinu?
H: Þessi hópur var valinn núna við erum að fara út á UEFA æfingarmót útí Litháen, þetta er í fyrsta sinn sem ég er valinn en ég hef ekki spilað neina aðra landsleiki.
D: Ég æfi bæði með U17, ári upp fyrir mig og U16 sem er minn aldursflokkur. Ég hef spilað tólf leiki, þrjá hér á Íslandi á Norðurlandamótinu. Ég spilaði fimm leiki í æfingarmóti í Hvíta Rússlandi og þrjá í undankeppni EM í Finnlandi.
Hvernig er búið að ganga?
D: Það er bara eins og það er, þetta gengur bara upp og niður. Sumir leikir ganga mjög vel, aðrir ekki eins vel, maður á bara að halda áfram og læra af þessu.
Af hverju byrjuðuð þið að æfa fótbolta?
H: Ég byrjaði að æfa fótbolta þegar ég var fjögurra - fimm ára og þá fann ég bara að þetta var eitthvað sem mér fannst gaman að gera.
D: Ég held það hafi bara verið út af pabba, það hefur alltaf verið fótbolti í fjölskyldunni og þetta er örugglega bara eitthvað í blóðinu.
Davíð, nú ert þú að æfa með meistaraflokki aðeins fimmtán ára gamall, er það í fyrsta sinn í sögu Keflavíkur?
Ég held ekki, ég held að einhverjir hafi verið á undan. Mig rámar í að Hilmar McShane og Sigurbergur Elísson hafa báðir verið fimmtán ára.
Hvað æfið þið oft í viku?
H: Ég æfi svona fimm til sex sinnum í viku og síðan er oftast einn leikur í hverri viku.
D: Það er misjafnt en yfirleitt æfi ég fimm til sex sinnum í viku og að sjálfsögðu aukalega.
Þið stefnið auðvitað á það að verða atvinnumenn í framtíðinni, ekki satt?
D: Það er rétt.
H: Ég held að það sé draumur allra sem eru í þessu.
Davíð Snær.
Ef þið mættuð velja, með hvaða liði mynduð þið helst vilja spila fyrir í atvinnumennsku?
D: Það væri annað hvort Juventus eða Manchester United.
H: Ég myndi vilja spila fyrir Real Madrid á Spáni.
D: Manchester United hefur alltaf verið í hjartanu, þetta er lið sem ég hef alltaf haldið með en það er eitthvað sem heillar mig við Ítalska fótboltann og Juventus, það er hjarta í því.
H: Þeir eru stærsta félagið með mestu söguna og bestu leikmennirnir eru þar.
Hver er „idolið“ ykkar?
H: Idolið mitt mun alltaf vera Gianluigi Buffon, markmaður Juventus í Ítalíu.
D: Maður hefur átt svo mörg idol í gegnum tíðina, ég held að fyrsti hafi verið Zidane, svo Cristiano Ronaldo og að sjálfsögðu Gylfi Sigurðsson.
Hvernig tónlist hlustar þú á?
D: Það er allt milli himins og jarðar, ég hlusta bæði á rokk, rapp, popp og klassískt. Þetta er bara allt í einhverju mauki.
Hver er draumabíllinn?
H: Ætli það sé bara ekki Tesla eða einhver sportbíll.
Helgi Bergmann.
Hafið þið einhver ráð fyrir unga fótboltastráka og stelpur sem vilja komast eins langt og þið?
H: Það er bara að æfa vel og gera eins vel og þú getur í hvert skipti, hvort sem þú ert á æfingu eða að keppa eða bara úti með félögunum í fótbolta.
D: Skiptir bara mestu máli að vera duglegur að æfa, gera hlutina sem aðrir gera ekki. Sofa vel, borða vel og drekka vel.
Davíð, ég var að frétta að þú sért kominn á mála hjá Adidas, getur þú sagt okkur eitthvað frá því?
Jú það er satt, þetta er bara eitthvað sem kom upp á, ég veit eiginlega ekki hvað ég get sagt um þetta. Þetta kom með landsliðsverkefnunum og þeir höfðu áhuga á mér og ég tók því bara vel. Maður þarf auðvitað að vera „humble“ með svona, passa sig að vera ekki að monta sig með þetta, þetta er ekki sjálfsagt.
Þið eruð auðvitað búnir að vera bestu vinir síðan þið voruð hvað, 5 ára? og núna eru þið báðir að fara keppa úti með landsliðinu, hvernig er það?
H: Það er auðvitað alltaf gaman að vera með besta vini sínum úti.
D: Já svo fylgir þetta bara því að við göngum í gegnum þetta saman, við höfum æft okkur saman síðan við vorum sirka sjö ára og það er fínt að vera útileikmaður með besta vini sínum sem er markmaður.
Einhver lokaorð?
D: Bara áfram Keflavík!
Viðtal og myndir: Árni Þór Guðjónsson
Viðtalið má einnig sjá í skemmtilegu myndskeiði hér fyrir neðan.