Keflvíkingum spáð titlinum í kvennaflokki
Spáin fyrir Domino´s deildirnar í körfubolta
Fyrr í dag lauk árlegum kynningarfundi vegna upphafs Domino's deildanna í körfubolta. Á fundinum er spá forráðamanna, þjálfara og fyrirliða opinberuð. Að þessu sinni er Keflavík spáð Íslandsmeistaratitlinum í kvennaflokki. Þar er Grindvíkingum spáð þriðja sæti. Karlaliðinum er spáð ágætis gengi. Samkvæmt spánni enda Grindvíkingar í öðru sæti og Njarðvíkingar í því fjórða. Keflvíkingum er svo spáð sjöunda sæti. Sjá má spána hér að neðan.
Lokastaða kvenna 2014-2015 skv. spá þjálfara, fyrirliða og formanna félaga:
(Hæsta gildi 192, lægsta 24)
1. Keflavík 174
2. Snæfell 146
3. Grindavík 138
4. Valur 138
5. Haukar 100
6. KR 72
7. Breiðablik 49
8. Hamar 47
Lokastaða karla 2014-2015 skv. spá þjálfara, fyrirliða og formanna félaga
(Hæsta gildi 432, lægsta 36)
1. KR 425
2. Grindavík 342
3. Stjarnan 340
4. Njarðvík 318
5. Tindastóll 282
6. Haukar 275
7. Keflavík 221
8. Snæfell 165
9. Þór Þ. 154
10. Fjölnir 117
11. ÍR 101
12. Skallagrímur 68