Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Íþróttir

Keflvíkingar völtuðu yfir KR
Fimmtudagur 21. febrúar 2019 kl. 08:14

Keflvíkingar völtuðu yfir KR

Sitja einar á toppi deildarinnar

Keflvíkingar gjörsigruðu KR, 91-59 í toppslag Domino's deildar kvenna í körfubolta á heimavelli sínum í gær. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik og var staðan 28-27 þegar gengið var til búningsklefa. Það var svo allt annað Keflavíkurlið sem mætti til síðari hálfleiks og tók öll völd á vellinum. Eftir sigurinn eru Keflavíkurkonur einar á toppi deildarinnar á meðan KR er tveimur stigum á eftir í öðru sæti.

Brittanny Dinkins skoraði 34 stig og tók 18 fráköst fyrir Keflavík og Birna Valgerður skoraði 19.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Keflavík: Brittanny Dinkins 34/18 fráköst/8 stoðsendingar, Birna Valgerður Benónýsdóttir 19/8 fráköst, Bryndís Guðmundsdóttir 13/9 fráköst, Salbjörg Ragna Sævarsdóttir 10/7 fráköst, Erna Hákonardóttir 7, Katla Rún Garðarsdóttir 4/5 fráköst, Anna Ingunn Svansdóttir 2, Irena Sól Jónsdóttir 2, Hjördís Lilja Traustadóttir 0, María Jónsdóttir 0, Eydís Eva Þórisdóttir 0, Elsa Albertsdóttir 0.

KR: Orla O'Reilly 25/8 fráköst, Kiana Johnson 20/10 fráköst/6 stoðsendingar, Ástrós Lena Ægisdóttir 7/4 fráköst, Perla  Jóhannsdóttir 5, Þorbjörg Andrea Friðriksdóttir 2/5 fráköst, Vilma Kesanen 0, Ragnhildur Arna Kristinsdóttir 0, Eygló Kristín Óskarsdóttir 0, Jenný Lovísa Benediktsdóttir 0, Margrét Blöndal 0, Þóra Birna Ingvarsdóttir 0.