Keflvíkingar unnu Þór örugglega - fjórði leikur á föstudag
Keflvíkingar sýndu mátt sin og meginn og unnu þriðja leikinn í úrslitum Domino’s deildarinnar í körfubolta karla örugglega gegn Þór Þorlákshöfn í Blue höllinni í Keflavík í kvöld. Lokatölur 97-83 og fjórði leikurinn verður í Þorlákshöfn á föstudaginn. Staðan 1-2 fyrir Þór.
Keflvíkingar byrjuðu betur og leiðtoginn Hörður Axel Vilhjálmsson gaf tóninn í upphafi með góðri körfu og leiddi liðið sem sýndi allt aðra orku og frammistöðu en í síðustu tveimur leikjum. Keflvíkingar leiddu með 8 stigum eftir fyrsta leikhluta og í hálfleik munaði níu stigum 47-38.
Gestirnir úr Þorlákshöfn náðu góðum spretti í þriðja leikhluta en heimamenn svöruðu alltaf að bragði. Þeir léku mjög sterka vörn og fengu gott framlag af bekknum, sérstaklega í vörninni. Keflvíkingar héldu uppteknum hætti út leikinn og hleyptu Þórsurum aldrei nálægt sér og sigruðu sannfærandi.
„Það var allt annað tempó hjá okkur núna. Við fórum í sálfræði 101 eftir tapið í öðru leikunum og sýndum það í þessum leik að við vorum alls ekki á leiðinni í sumarfrí,“ sagði Hjalti Vilhjálmsson, þjálfari Keflvíkinga.
Calvin Burks Jr. hefur verið besti maður Keflvíkinga í úrslitunum gegn Þór og hann var stigahæstur þriðja leikinn í röð með 26 stig. Milka skilaði 25 stigum en umfram allt var það liðsheildin sem skilaði þessum sannfærandi sigri heimamanna sem voru ólíkir sér í fyrstu tveimur leikjunum gegn Þór.
Keflavík-Þór Þorlákshöfn 97-83 (23-15, 24-23, 20-18, 30-27)
Keflavík: Calvin Burks Jr. 26/6 fráköst, Dominykas Milka 25/7 fráköst, Deane Williams 13/9 fráköst, Hörður Axel Vilhjálmsson 11/9 stoðsendingar, Valur Orri Valsson 10/7 fráköst/6 stoðsendingar, Arnór Sveinsson 7, Reggie Dupree 5, Magnús Pétursson 0, Þröstur Leó Jóhannsson 0, Almar Stefán Guðbrandsson 0, Ágúst Orrason 0, Davíð Alexander H. Magnússon 0.
Þór Þorlákshöfn: Larry Thomas 24/5 fráköst, Ragnar Örn Bragason 12, Halldór Garðar Hermannsson 12, Callum Reese Lawson 10/4 fráköst, Styrmir Snær Þrastarson 9/5 fráköst, Adomas Drungilas 8/6 fráköst/6 stoðsendingar, Emil Karel Einarsson 5, Tómas Valur Þrastarson 2, Benedikt Þorvaldur G. Hjarðar 1, Sæmundur Þór Guðveigsson 0, Ingimundur Orri Jóhannsson 0, Davíð Arnar Ágústsson 0.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Davíð Tómas Tómasson, Rögnvaldur Hreiðarsson
Áhorfendur: 600
Viðureign: 1-2
Burks og Milka voru gríðarlega sterkir í leiknum.