Keflvíkingar unnu jólamót Hitaveitu Suðurnesja
Keflavík vann Grindavík í úrslitaleik jólamóts Hitaveitu Suðurnesja sem fór fram í gær og fyrradag. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 4-4 og þurfti því úrslit að ráðast í vítaspyrnukeppni. Þar skipti sköpum að Gunnleifur Gunnleifsson, markvörður Keflavíkur, varði víti Sinisa Kekic og fögnuðu því heimamenn sigri því mótið fór fram í Reykjaneshöllinni. Í leik um 3. sætið vann Fram ÍA einnig eftir vítaspyrnukeppni en staðan að loknum venjulegum leiktíma var 2-2.