Keflvíkingar umbera ekki kynþáttafordóma
Í ljósi umræðu sem skapast hefur um atvik sem átti sér stað í leik Keflavíkur og ÍBV í Pepsi-deild karla þá vill Knattspyrnudeild Keflavíkur koma því á framfæri að kynþáttafordómar verða aldrei umbornir hjá félaginu. Komi það í ljós að stuðningsmaður félagsins hafi haft uppi ósæmandi orðbragð sem beindist að leikmanni ÍBV verður tekið á málinu af fullum þunga innan félagsins og í samráði við KSÍ.
f.h. knattspyrnudeildar Keflavíkur
Þorsteinn Magnússon formaður.
Tengdar fréttir: Umdeilt atvik í Keflavík