Bygg
Bygg

Íþróttir

Keflvíkingar töpuðu leiknum á fimm mínútum
Sindri Kristinn átti ágætis leik í marki Keflavíkur þrátt fyrir að hafa fengið fjögur mörk á sig. Mynd úr safni Víkurfrétta
Jóhann Páll Kristbjörnsson
Jóhann Páll Kristbjörnsson skrifar
föstudaginn 14. maí 2021 kl. 09:54

Keflvíkingar töpuðu leiknum á fimm mínútum

Leikur Breiðabliks og Keflavíkur í Pepsi Max-deild karla í knattspyrnu var jafn og spennandi framan af en á fimm mínútna kafla í síðari hálfleik misstu Keflvíkingar einbeitinguna og fengu að launum þrjú mörk í andlitið. Lokatölur 4:0 fyrir Breiðablik.

Snemma leiks fengu Blikar vítaspyrnu sem þeir skoruðu út (12') en Keflavík var nálægt því að jafna aðeins tveimur mínútum síðar þegar Blikar misstu boltann og Kian Williams átti ágætis skot sem fór í varnarmann og það til markmanns. Fyrri hálfleikur var fjörugur og bæði leið fengu sín færi. Sindri Kristinn Ólafsson sýndi magnaða markvörslu þegar þess þurfti og sama má segja um markvörð Blika.

Slæmur kafli gerir út af við leikinn

Breiðablik byrjaði seinni hálfleik aðeins betur en Keflavík en þrátt fyrir það var leikurinn í raun beggja liða – þar til á 68. mínútu. Þá komust Blikar í tveggja marka forystu og eitthvað einbeitingarleysi virðist hafa hrjáð Keflvíkinga á þessum tímapunkti því tvö önnur mörk fylgdu í kjölfarið (69' og 71'). Þrjú mörk á þremur mínútum og þarna eiga Keflvíkingar engan séns á að koma til baka.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Keflavík lék heilt yfir ágætlega en Blikar gerðu vel á stuttum kafla og það gerði út um leikinn.