Keflvíkingar stóðu sig vel á Haustmóti 2
Um síðastliðna helgi fór fram Haustmót 2 FSÍ í áhaldafimleikum en keppt var í 3., 2. og 1. þrepi og frjálsum æfingum. Keflavík sendi tíu keppendur á mótið og stóðu þau sig vel.
Klara Lind Þórarinsdóttir keppti í 3. þrepi 12 ára og náði hún þrepinu sínu. Hún vann til nokkurra verðlauna, en hún var í 2. sæti á tvíslá, 1. sæti á gólfi og 2. sæti í fjölþraut.
Atli Viktor Björnsson keppti í 3. þrepi karla og vann einnig til nokkurra verðlauna, en hann var í 1. sæti á hringjum, 1. sæti á svifrá og 3. sæti í fjölþraut.
Samúel Skjöldur Ingibjargarson keppti í 3. þrepi karla. Hann varð í 3. sæti á svifrá og 5. sæti í fjölþraut.
Svanhildur Reykdal Kristjánsdóttir keppti í 1. þrepi og náði hún þrepinu sínu. Hún vann einnig til verðlauna, hún var í 2. sæti á stökki og 5. sæti í fjölþraut.
Laufey Ingadóttir keppti í unglingaflokki í frjálsum æfingum. Hún hafnaði í 2. sæti í stökki.