Keflvíkingar sóttu þrjú stig norður
Lið Keflavíkur sótti góð þrjú stig norður í gærkvöldi þegar þeir mættu Þór í Inkasso deildinni í knattspyrnu, þeir eru því á góðri leið að tryggja sér sæti í Pepsi- deildinni. Mörk Keflavíkur skoruðu Adam Árni Róbertsson á 32. mínútu, Jeppe Hansen skoraði úr víti á 39. mínútu og lokamarkið skoraði Lasse Rise, mínútu eftir að Jeppe Hansen skoraði af vítapunktinum. Þess má einnig geta að markmaður Keflavíkur, Sindri Kristinn varði tvö víti í leiknum.
Keflvíkingar mæta Gróttu næst í Inkasso- deildinni á Nettóvellinum þann 7.september næstkomandi.