Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Íþróttir

Keflvíkingar sópuðu að sér verðlaunum
Þriðjudagur 26. nóvember 2013 kl. 09:27

Keflvíkingar sópuðu að sér verðlaunum

Glæsilegur árangur á Scottish Open

17 keppendur úr íslenska taekwondo landsliðinu kepptu á Scottish Open mótinu um helgina og þar af voru 13 frá Keflavík. Skemmst er frá því að segja að allir íslensku keppendurnir fengu verðlaun og sumir keppendur fengu nokkur verðlaun. Keflvíkingar voru sérstaklega sigursælir en af þeim 36 verðlaunum sem íslenska liðið hlaut, þá unnu Keflvíkingar 31.

Í lok mótsins var tekin saman heildarárangur fyrir tækni, bardaga og svo samanlagður árangur beggja greina og gefnar viðurkenningar. Íslenska landsliðið var með besta árangur allra liða í tækni (það voru bara Keflvíkingar að keppa í tækni), annan besta árangur liða í bardaga og annan besta samanlagðan árangur. Það er ótrúlega góður árangur sérstaklega í ljósi þess að mörg önnur lið voru mun stærri en íslenska liðið. Það var liðið Manchester Sport taekwondo sem sigraði samanlagðan árangur og í bardaga en það lið skartaði rúmlega 40 keppendum, meira en tvöfalt meira en íslenska liðið. Alls tóku um 40 lið þátt í mótinu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Keppt var í bardaga, einstaklingstækni, paratækni og hópatækni. Sumir keppendur gátu jafnvel keppt í tveimur flokkum í bardaga þegar það átti við. Á laugardegi kepptu lægri belti í bardaga og hærri belti í tækni. Á sunnudegi var það svo öfugt þannig að keppendur gætu keppt í báðum greinum ef þeir óskuðu eftir því. Íslendingarnir vöktu athygli annarra keppenda, þjálfara og dómara fyrir góða tækni, íþróttamannslega hegðun, kurteisi og keppnisskap.

Árangur íslenska liðsins
Gull – 18 (Keflavík var með 16 af þeim)
Silfur – 10 (Keflavík – 8)
Brons – 8 (Keflavík – 7)

Adda Paula Ómarsdóttir – Silfur í einstaklingstækni, gull í paratækni
Arnar Bragason (Afturelding) – Silfur í bardaga
Ágúst Kristinn Eðvarðsson – Gull í bardaga og silfur í einstaklingstækni.
Ástrós Brynjarsdóttir – Gull í bardaga, gull í einstaklingstækni, gull í paratækni
Bjarni Júlíus Jónsson – Gull í bardaga, brons í bardaga, brons í bardaga og brons í hópatækni.
Daníel Aagard Nielsen Egilsson –  Gull í bardaga, gull í bardaga og gull í einstaklingstækni
Daníel Arnar Ragnarsson – Brons í einstaklingstækni
Erla Björg Rúnarsdóttir (Afturelding) – Gull í bardaga og silfur í bardaga
Helgi Rafn Guðmundsson – Gull í einstaklingstækni og silfur í bardaga
Herdís Þórðardóttir (Afturelding)  – Gull í bardaga
Hrafnhildur Rafnsdóttir (Björk) – Brons í bardaga
Karel Bergmann Gunnarsson – Silfur í bardaga og silfur í hópatækni
Kolbrún Guðjónsdóttir – Gull í einstaklingstækni
Kristmundur Gíslason – Gull í bardaga og silfur í hópatækni
Svanur Þór Mikaelsson – Gull í bardaga, gull í paratækni, silfur í einstaklingstækni og brons í hópatækni
Sverrir Örvar Elefsen – Gull í bardaga, gull í paratækni, silfur í hópatækni og brons í einstaklingstækni.
Ægir Már Baldvinsson – Gull í bardaga, silfur í einstaklingstækni, brons í bardaga og brons í hópatækni