Keflvíkingar sigursælir á bikarmóti
Victoría Ósk Anítudóttir keppandi mótsins
Keflvíkingar sigruðu á öðru bikarmót Taekwdonosamband Íslands sem haldið var í Mosfellsbæ um helgina. Victoría Ósk Anítudóttir úr Keflavík var valin kona mótsins og Eyþór Atli Reynisson úr Ármanni var valinn karl mótsins.
Keflvíkingar eru með ágætis forskot í liðakeppninni en heildarárangur þriggja bikarmóta gilda til bikarmeistaratitils. Lið Ármenninga, sem er helsti keppinautur Keflvíkinga í bikarkeppninni hafnaði í 2. sæti.