Keflvíkingar semja við Dominique
Körfuknattleiksdeild Keflavíkur hefur samið við hina 26 ára gömlu Dominique Hudson um að leika með kvennaliði Keflavíkur á komandi leiktímabili í Domino's deildinni. Dominique er 165 cm á hæð og spilar sem leikstjórnandi. Hún lék með Gardner Webb háskólanum í NCAA D1 við góðan orðstír, þar sem hún var í úrvalsliði deildarinnar tvö ár í röð. Dominque hefur verið aðstoðarþjálfari hjá North Carolina A&T auk þess að spila í semi pro deild í USA.