Sunnudagur 2. október 2005 kl. 02:21
Keflvíkingar prúðastir
Keflvíkingar voru kjörnir prúðasta liðið bæði í Landsbankadeild karla og - kvenna á lokahófi KSÍ á Broadway í kvöld.
Bæði lið voru félagi sínu til sóma á vellinum og fengu strákarnir 25 gul spjöld og eitt rautt og stelpurnar einungis 7 gul spjöld og ekkert rautt.
Þetta kemur fram á fotbolti.net