Keflvíkingar niðurlægir á Laugardalsvelli
Það var algjör niðurlægin sem blasti við Keflvíkingum eftir leik liðsins við Fram í gærkvöldi. Liðið steinlá 5-0 á Laugardalsvellinum og er þetta versta tap Keflvíkinga í efstu deild í langan tíma. Eftir aðeins 15 mínúta leik var staðan orðin 2-0 fyrir heimamenn með mörkum frá Jón Guðna Fjólusyni og Joe Tillen en vörnin hjá Keflvíkingum var úti á þekju í þessum leik.
Sóknarleikur Keflvíkinga var ekki upp á marga fiska í þessum leik en það hefur verið þeirra aðalsmerki undanfarnar leiktíðir og ekkert gekk upp. Frammarar gerðu í raun út um leikinn í upphafi síðari hálfleiks þegar liðið komst í 3-0 með marki Halldórs Hermanns Jónssonar á 54. mínútu. Hann var svo aftur á ferðinni á 70. mínútu þegar hann bætti fjórða markinu við og Guðmundur Magnússon fullkomnaði svo niðurlæginguna með marki á 89. mínútu og lokastaðan 5-0 fyrir heimamenn sem lyftu sér þar með af botnsvæðinu.
Með sigri hefði Keflvíkingum tekist að komast upp að hlið KR í 2. sæti deildarinnar en þess í stað situr liðið í 4. sæti með 24. stig. Næsti leikur liðsins verður gegn Breiðabliki á Sparisjóðsvellinum n.k. sunnudag og hefst leikurinn kl. 19:15.
VF-Mynd: Niðurlæging Keflavíkur var algjör í gær.